Þjónustu og nýsköpunarsvið

Staðsetning Ísland
Stofnað 2019
Starfsmenn 180
Heimasíða www.reykjavik.is/thjonustu-og-nyskopunarsvid

Um Þjónustu- og nýsköpunarsvið


Þjónustu- og nýsköpunarsvið tók til starfa 1. júní 2019 og er eitt af þremur kjarnasviðum Reykjavíkurborgar. Sviðið ber ábyrgð á upplýsingatækni og gagnastýringu Reykjavíkurborgar, þjónustuumbreytingu, innri nýsköpun og tæknilegum umbótum ásamt þjónustu á því sviði. Einnig ábyrgð á samræmingu í framlínuþjónustu, rekstri stjórnsýslubygginga og stjórn skjalamála, þ.m.t. langtímavarðveislu. Sviðið sinnir þannig fjölbreyttum verkefnum þvert á borgarkerfið og leiðir innleiðingu á þjónustustefnu Reykjavíkurborgar, en alla þjónustu borgarinnar á að skipuleggja út frá þörfum notenda.

 

Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Lögð er rík áhersla á traust, teymisstarf, mikilvægi þess að hlusta og vera sífellt að læra hvort af öðru. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf íbúa og starfsfólks borgarinnar. 

95%

Segja að starfsfólk á ÞON sýni hvert öðru umhyggju

95%

Starfsfólks segja að stjórnendur líti á tilfallandi mistök sem eðlilegan hluta vinnunnar

96%

Starfsfólks segja að komið sé vel fram við fólk óháð kynhneigð þess

96%

Starfsfólks segja að stjórnendur treysti því til góðra verka án þess að fylgjast stöðugt með því

93%

Starfsfólks finnst muna um það

93%

Starfsfólks finnst það leggja sitt af mörkum til samfélagsins

Starfsfólkið skiptir

okkur öllu máli

Við erum mjög stolt að því að hljóta viðurkenninguna Frábær vinnustaður árið 2024 frá Great Place To Work. Undanfarin ár höfum við stöðugt unnið að því að gera starfsstaðinn framúrskarandi og viðurkenningin hvetur okkur enn frekar áfram á þessari vegferð. Við störfum að miklu leyti í tæknigeiranum og leitum stöðugt að frábæru starfsfólki og því er svona viðurkenning mikilvæg, því hún gefur upplýsingar um líðan og upplifun starfsfólksins sem hér starfar. Að hafa þekkta, alþjóðlega vottun skiptir þannig bæði núverandi og tilvonandi starfsfólk máli þegar það velur sér vinnustað. 


Óskar J. Sandholt, sviðsstjóri Þjónustu- og nýsköpunarsviðs

LAUS STÖRF
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button
  • Slide title

    Write your caption here
    Button