
Frábærir vinnustaðir
á Íslandi 2026™
Great Place To Work® er alþjóðleg stofnun um vinnustaðamenningu, sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að búa til einstaka, afkastamikla vinnustaði þar sem starfsfólki finnst því vera treyst og metið að verðleikum.
Listinn yfir
Frábæra
vinnustaði
á Íslandi 2026™
á Íslandi, inniheldur fyrirtæki sem hafa sannað að þau hafi skapað frábæra vinnustaðamenningu sem byggir á trausti og er studd af nýstárlegum starfsháttum í mannauðsstjórnun
Til að setja saman listann yfir Frábæra vinnustaði á Íslandi 2026™ greindi Great Place To Work® svör úr vinnustaðakönnunum sem gerðar eru í trúnaði um traust og möguleika starfsfólks á frama í starfi, ásamt upplifun þess af nýsköpun, gildum fyrirtækisins og árangri stjórnenda þvert á mismunandi svið og stjórnunarstig. Við notum síðan þessi gögn til að bera áherslur fyrirtækisins í mannauðsmálum saman við þá vinnustaðamenningu sem starfsfólkið upplifir í raun og veru. Aðeins þau fyrirtæki og stofnanir sem fá hæstu einkunnir eftir þetta mat hljóta útnefningu meðal Frábærir vinnustaðir á Íslandi 2026™.
Great Place To Work
Frábærir vinnustaðir á Íslandi 2026™
Frásagnir fyrirtækja
„Að vera í 2. sæti á lista GPTW er okkur afar mikilvæg viðurkenning, sérstaklega vegna þess að þetta kemur beint frá fólkinu okkar. Fyrir okkur er þetta staðfesting á því að við séum á réttri leið, en líka hvatning til að gera enn betur. Við viljum halda áfram að þróast sem vinnustaður og tryggja að fólkinu okkar líði vel og hafi tækifæri til að vaxa.“
„Niðurstöður GPTW-kannana eru mikilvægur grunnur að stefnumótun í mannauðsmálum. Árleg könnun veitir dýrmæta innsýn í upplifun og viðhorf starfsfólks, sem gerir okkur kleift að forgangsraða verkefnum á markvissan hátt. Stjórnendur fá niðurstöður fyrir sína hópa, setja sér skýr markmið í framhaldinu og mannauðssvið fylgir þeim eftir með reglubundnum hætti til að tryggja framfarir.“
Viðtal við AÞ-Þrif

AÞ Þrif hafnaði í 1. sæti á lista Great Place to Work yfir frábæra vinnustaði á Íslandi og er viðurkenningin skýr staðfesting á þeirri sterku vinnustaðamenningu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þar eru samheldni, teymisvinna, gagnkvæmur stuðningur og virðing í forgrunni.
Árangurinn er ekki aðeins mikil viðurkenning fyrir AÞ Þrif, heldur einnig mikilvægt tækifæri til að varpa jákvæðu ljósi á ræstingarstarfið og það faglega starf sem fer fram víðs vegar um landið. Í viðtalinu ræðir Dagbjört Una Helgadóttir, sviðsstjóri mannauðs hjá AÞ Þrif, um menninguna, mikilvægi GPTW-vottunarinnar og hvernig fyrirtækið notar niðurstöður kannana til að styrkja starfsumhverfið enn frekar.
Viðtal við DHL

DHL Express hafnaði í 2. sæti á lista Great Place to Work yfir frábæra vinnustaði á Íslandi og er viðurkenningin skýr staðfesting á þeirri sterku menningu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þar er lögð áhersla á traust, virðingu og liðsheild, með People First hugsunina að leiðarljósi.
Þrátt fyrir að vera hluti af stóru alþjóðlegu fyrirtæki hefur DHL Express tekist að skapa persónulegt og opið vinnuumhverfi þar sem starfsfólk finnur fyrir stuðningi, samheldni og raunverulegu samtali. Í viðtalinu ræðir Gyða Arna Halldórsdóttir, HR Director hjá DHL Express, um vinnustaðamenninguna, mikilvægi GPTW-vottunarinnar og hvernig niðurstöður kannana hjálpa fyrirtækinu að þróast áfram.
Fáðu viðurkenningu fyrir
frábæran vinnustað
Komdu einstakri vinnustaðamenningu þinni á framfæri við heiminn
Hvernig getum við aðstoðað?
Láttu okkur vita hvernig við getum aðstoðað og við höfum samband um hæl.

Hafðu Samband
Einfaldlega fylltu inn eftirfarandi upplýsingar og við munum hafa samband til að svara spurningum þínum


