Frábær vinnustaður fyrir konur 2024 (TM)

Fyrirtæki með jafnt kynjahlutfall skilar betri fjárhagslegri afkomu

Viðurkenningin gefur okkur staðfestingu á þeirri góðu vinnu sem hefur átt sér.

Við erum stolt að hljóta viðurkenninguna Frábær vinnustaður fyrir konur árið 2024 frá Great Place To Work. Viðurkenningin gefur okkur staðfestingu á þeirri góðu vinnu sem hefur átt sér stað hjá Sahara og hvetur okkur til að halda áfram á þessari vegferð.


Viðskiptavinir okkar koma úr ólíkum geirum, þar sem þarfir þeirra og markmið eru mismunandi. Þetta fjölbreytta umhverfi felur í sér spennandi áskoranir og leggjum við því ríka áherslu á teymisvinnu þar sem teymin eru samsett af ólíkum einstaklingum, þar sem allir fá jöfn tækifæri að láta rödd sína heyrast. 


Þannig náum við árangri fyrir viðskiptavini okkar, en einnig opnum við á tækifæri fyrir starfsmenn að takast á við mismunandi áskoranir sem eflir þau í starfi. 


Við trúum því heilshugar og þekkjum af eigin reynslu að með því að nálgast verkefnin með þessari skýru stefnu og hugarfari að við eigum eftir að ná betri árangri fyrir viðskiptavini okkar og fyrirtækið í heild sinni.


Sigurður Svansson, Framkvæmdastjóri - Sahara

Share by: