Viðtal við AÞ-Þrif - Frábærir vinnustaðir á Íslandi 2026

AÞ Þrif hafnaði í 1. sæti á lista Great Place to Work yfir frábæra vinnustaði á Íslandi og er viðurkenningin skýr staðfesting á þeirri sterku vinnustaðamenningu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þar eru samheldni, teymisvinna, gagnkvæmur stuðningur og virðing í forgrunni.


Árangurinn er ekki aðeins mikil viðurkenning fyrir AÞ Þrif, heldur einnig mikilvægt tækifæri til að varpa jákvæðu ljósi á ræstingarstarfið og það faglega starf sem fer fram víðs vegar um landið. Í viðtalinu ræðir Dagbjört Una Helgadóttir, sviðsstjóri mannauðs hjá Þrif, um menninguna, mikilvægi GPTW-vottunarinnar og hvernig fyrirtækið notar niðurstöður kannana til að styrkja starfsumhverfið enn frekar.

1. Nefndu eitthvað sem öðru fremur einkennir vinnustaðamenninguna í þínu fyrirtæki?


Vinnustaðamenning okkar einkennist fyrst og fremst af sterkri samheldni og teymisvinnu. Við leggjum áherslu á að starfsfólk upplifi sig sem hluta af samstilltu teymi þar sem gagnkvæmur stuðningur og virðing eru í fyrirrúmi. Þetta endurspeglast meðal annars í öflugri nýliðafræðslu, góðum fríðindum og virku starfsmannafélagi. Fræðsla og þróun starfsfólks er jafnframt lykilþáttur í starfsemi okkar og höfum við meðal annars hlotið tilnefningu sem menntafyrirtæki ársins.

 

2. Hvaða þýðingu hefur það fyrir ykkur að vera í 1. sæti á lista GPTW yfir Bestu vinnustaðina?


Að vera í 1. sæti á lista GPTW yfir bestu vinnustaðina er mikil viðurkenning og staðfesting á árangri í uppbyggingu jákvæðrar vinnustaðamenningar. Þetta er jafnframt mikilvægt tækifæri til að varpa jákvæðu ljósi á ræstingarstarfið. Árangurinn undirstrikar að starfsfólk okkar upplifir vellíðan og ánægju í starfi, á fjölbreyttum vinnustöðum víðs vegar um landið.


3. Telur þú vottun GPTW hjálpa til við að laða hæfileikaríkt starfsfólk að fyrirtækinu?


Vottun GPTW hefur án efa jákvæð áhrif á aðdráttarafl fyrirtækisins. Hún styrkir ímynd okkar og eykur sýnileika á vinnumarkaði, sem gerir okkur betur í stakk búin til að laða að og halda í hæfileikaríkt starfsfólk.


4. Hafa kannanir GPTW leitt af sér breytingar á nálgun og áherslum í mannauðsmálum?


Niðurstöður GPTW-kannana eru mikilvægur grunnur að stefnumótun í mannauðsmálum. Árleg könnun veitir dýrmæta innsýn í upplifun og viðhorf starfsfólks, sem gerir okkur kleift að forgangsraða verkefnum á markvissan hátt. Stjórnendur fá niðurstöður fyrir sína hópa, setja sér skýr markmið í framhaldinu og mannauðssvið fylgir þeim eftir með reglubundnum hætti til að tryggja framfarir.


5. Verður vart við aukið traust og virðingu meðal starfsólks í kjölfar vottunar GPTW?


Við verðum fyrst og fremst vör við aukið stolt meðal starfsfólks. Áhugi á niðurstöðum og frammistöðu fyrirtækisins hefur aukist, sem endurspeglar sterkari tengingu starfsfólks við vinnustaðinn og aukna þátttöku.


6. - EXTRA - Auka kannanir og vottun GPTW vitund fólks og skilning á strúktúrnum á vinnustaðnum? 


Kannanirnar stuðla að aukinni vitund og skilningi á skipulagi og starfsemi fyrirtækisins. Með kynningu á niðurstöðum og eftirfylgni með umbótaverkefnum eykst gagnsæi og starfsfólk fær betri innsýn í uppbyggingu og áherslur.

 

7. - EXTRA - Opnar GPTW á umræðu um t.d. jafnvægi vinnu og einkalífs, kynjahlutfall, launamál o.fl.?


GPTW skapar mikilvægan vettvang fyrir opna og uppbyggilega umræðu um lykilþætti starfsumhverfisins, svo sem jafnvægi milli vinnu og einkalífs, jafnrétti og kjör. Starfsfólk hefur þar tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og leggja sitt af mörkum til áframhaldandi umbóta. Í okkar niðurstöðum hefur jafnframt komið fram mikið hrós til stjórnenda, sem er afar jákvætt og hvetjandi.

3. júní 2026
DHL Express hafnaði í 2. sæti á lista Great Place to Work yfir frábæra vinnustaði á Íslandi og er viðurkenningin skýr staðfesting á þeirri sterku menningu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þar er lögð áhersla á traust, virðingu og liðsheild, með People First hugsunina að leiðarljósi. Þrátt fyrir að vera hluti af stóru alþjóðlegu fyrirtæki hefur DHL Express tekist að skapa persónulegt og opið vinnuumhverfi þar sem starfsfólk finnur fyrir stuðningi, samheldni og raunverulegu samtali. Í viðtalinu ræðir Gyða Arna Halldórsdóttir , HR Director hjá DHL Express , um vinnustaðamenninguna, mikilvægi GPTW-vottunarinnar og hvernig niðurstöður kannana hjálpa fyrirtækinu að þróast áfram.
8. maí 2025
Í þessum hlaðvarpsþætti Great Place To Work ræðir Unnur Helgadóttir við þær Dagbjörtu Unu Helgadóttur, mannauðsstjóra hjá AÞ Þrifum og Bryndísi Kristjánsdóttur, mannauðsstjóra hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar, en báðir þessir vinnustaðir hafa hlotið viðurkenninguna Frábærir vinnustaðir fyrir konur í flokknum 100 starfsmenn eða fleiri.
13. apríl 2025
AÞ-Þrif skipar nú efsta sætið á nýjum lista Great Place To Work á Íslandi yfir Frábæra vinnustaði fyrir konur 2025 í flokki stærri fyrirtækja og er þetta annað árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þessa vottun. AÞ-Þrif er þjónustufyrirtæki sem sér um allar almennar hreingerningar hjá fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum; allt frá skólum upp í gagnaver. Fyrirtækið er á meðal þeirra stærstu hér á landi í þessari atvinnugrein og hjá því starfa nú um 250 manns, þar af eru hátt í 70% konur og 90% starfsfólks er af erlendum uppruna og kemur frá yfir 30 þjóðlöndum.
6. mars 2025
Great Place to Work hefur birt nýjan lista yfir Frábæra vinnustaði fyrir konur™ á Íslandi. Listinn inniheldur fyrirtæki sem vilja tryggja eðlilegt jafnvægi milli kvenna og karla á öllum sviðum; ryðja úr vegi hindrunum fyrir þróun kvenna í starfi og skapa vinnuumhverfi þar sem allt starfsfólk, óháð kyni, getur blómstrað.
Show More