DHL Express hafnaði í 2. sæti á lista Great Place to Work yfir frábæra vinnustaði á Íslandi og er viðurkenningin skýr staðfesting á þeirri sterku menningu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þar er lögð áhersla á traust, virðingu og liðsheild, með People First hugsunina að leiðarljósi.
Þrátt fyrir að vera hluti af stóru alþjóðlegu fyrirtæki hefur DHL Express tekist að skapa persónulegt og opið vinnuumhverfi þar sem starfsfólk finnur fyrir stuðningi, samheldni og raunverulegu samtali. Í viðtalinu ræðir Gyða Arna Halldórsdóttir, HR Director hjá DHL Express, um vinnustaðamenninguna, mikilvægi GPTW-vottunarinnar og hvernig niðurstöður kannana hjálpa fyrirtækinu að þróast áfram.

1. Nefndu eitthvað sem öðru fremur einkennir vinnustaðamenninguna í þínu fyrirtæki?
Vinnustaðamenningin hjá DHL Express byggir á trausti, virðingu og sterkri liðsheild og einkennist helst af People First hugsuninni, þar sem starfsfólkið er sett í öndvegi. Hér þekkist fólk vel, það er stutt í samtalið og auðvelt að leita til stjórnenda. Við vinnum öll út frá ákveðnu Can Do hugarfari – við finnum lausnir og hjálpumst að.
Þrátt fyrir að vera hluti af stóru alþjóðlegu fyrirtæki ríkir persónulegt andrúmsloft þar sem allir skipta máli og sameiginlegur metnaður knýr árangur.
2. Hvaða þýðingu hefur það fyrir ykkur að vera í 2. sæti á lista GPTW yfir Bestu vinnustaðina?
Að vera í 2. sæti á lista GPTW er okkur afar mikilvæg viðurkenning, sérstaklega vegna þess að þetta kemur beint frá fólkinu okkar. Fyrir okkur er þetta staðfesting á því að við séum á réttri leið, en líka hvatning til að gera enn betur. Við viljum halda áfram að þróast sem vinnustaður og tryggja að fólkinu okkar líði vel og hafi tækifæri til að vaxa.
3. Telur þú vottun GPTW hjálpa til við að laða hæfileikaríkt starfsfólk að fyrirtækinu?
Já, við finnum það alveg. Vottunin segir mikið án þess að þurfa að segja mikið – hún gefur skýrt merki um að þetta sé góður vinnustaður. Fólk er orðið meðvitaðra um hvað það vill í vinnu, og traust og góð menning skipta þar miklu máli. Þannig hjálpar þetta okkur að ná til fólks sem er að leita að meira en bara starfi.
4. Hafa kannanir GPTW leitt af sér breytingar á nálgun og áherslum í mannauðsmálum?
Já. Þær hafa hjálpað okkur að sjá bæði hvað við erum að gera vel og hvar við getum bætt okkur. Við notum niðurstöðurnar markvist sem grunn að samtali, umbótavinnu og þróun – þetta er ekki bara mæling heldur verkfæri sem hjálpar okkur að taka betri ákvarðanir og þróa vinnustaðinn áfram.
5. Verður vart við aukið traust og virðingu meðal starfsólks í kjölfar vottunar GPTW?
Já, við finnum fyrir því. Það skapast ákveðið stolt og meiri samheldni þegar svona viðurkenning fæst. Starfsfólk sér að það er hlustað á það og að skoðanir þess skipta máli. Það hefur jákvæð áhrif á andrúmsloftið, samskipti og samvinnu
6. -EXTRA - Auka kannanir og vottun GPTW vitund fólks og skilning á strúktúrnum á vinnustaðnum?
Já, það gerir það. Ferlið í kringum kannanirnar kveikir oft góðar umræður og hjálpar fólki að skilja betur hvernig allt tengist saman.
Fólk sér skýrar sitt hlutverk í stóra samhenginu, sem skiptir miklu máli fyrir bæði samstarf og árangur.
7. - EXTRA - Opnar GPTW á umræðu um t.d. jafnvægi vinnu og einkalífs, kynjahlutfall, launamál o.fl.?
Algjörlega. DHL Express leggur mjög mikla áherslu á að fagna fjölbreytileikanum og opnar GPTW á mjög mikilvægar og uppbyggilegar umræður um málefni eins og jafnvægi vinnu og einkalífs, jafnrétti, fjölbreytileika og sanngirni.
Þetta eru samtöl sem skipta raunverulega máli og hjálpa okkur að halda áfram að byggja upp góðan og heilbrigðan vinnustað.







