Gagnadrifin mannauðsstjórnun - Great Place To Work Podcast

Viðtal við mannauðsstjóra tveggja Frábærra vinnustaða fyrir konur 2025

Í þessum hlaðvarpsþætti Great Place To Work ræðir Unnur Helgadóttir við þær Dagbjörtu Unu Helgadóttur, mannauðsstjóra hjá AÞ Þrifum og Bryndísi Kristjánsdóttur, mannauðsstjóra hjá þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar, en báðir þessir vinnustaðir hafa hlotið viðurkenninguna Frábærir vinnustaðir fyrir konur í flokknum 100 starfsmenn eða fleiri.


Meðal annars ræða þær um hvaða þýðingu það hefur fyrir þeirra vinnustaði að hafa hlotið þessa viðurkenningu og hvernig þær geta nýtt sér gögn sem verða til í könnunum GPTW. Lykillinn í mannauðsmálum að þeirra sögn er að geta sýnt fram á að þú sért að gera eitthvað sem skiptir máli og geta stutt það með gögnum. Reglulegar kannanir GPTW gefa þeim frábært tækifæri til að mæla árangur með því að rýna í gögnin – meta hvar gengur vel og hvar má gera betur – og geta svo unnið í markmiðum á milli kannana. Þátttaka starfsfólks í könnunum hjálpar þannig til við stefnumótun og skilar sér á endanum í betri þjónustu.


Dagbjört og Bryndís eru sammála um að vellíðan starfsfólks auki ekki einungis ánægju þess í starfi heldur dragi jafnframt úr veikindum og hafi bein áhrif á viðhorf viðskiptavina. Í þeim fjölbreytileika sem ríkir á vinnumarkaði segja þær mikilvægt að bera virðingu fyrir ólíkri menningu og trúarbrögðum, sýna skilning og koma upplýsingum á framfæri með fræðslu.

Konur eru í meirihluta á vinnustöðum þeirra beggja sem gerir þær sérstaklega stoltar af viðurkenningunni Frábær vinnustaður fyrir konur sem byggir á svörum starfsfólksins.


Við hvetjum öll sem láta sig mannauðsmál varða til að horfa á myndband með viðtalinu. 

3. júní 2026
DHL Express hafnaði í 2. sæti á lista Great Place to Work yfir frábæra vinnustaði á Íslandi og er viðurkenningin skýr staðfesting á þeirri sterku menningu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þar er lögð áhersla á traust, virðingu og liðsheild, með People First hugsunina að leiðarljósi. Þrátt fyrir að vera hluti af stóru alþjóðlegu fyrirtæki hefur DHL Express tekist að skapa persónulegt og opið vinnuumhverfi þar sem starfsfólk finnur fyrir stuðningi, samheldni og raunverulegu samtali. Í viðtalinu ræðir Gyða Arna Halldórsdóttir , HR Director hjá DHL Express , um vinnustaðamenninguna, mikilvægi GPTW-vottunarinnar og hvernig niðurstöður kannana hjálpa fyrirtækinu að þróast áfram.
3. júní 2026
AÞ Þrif hafnaði í 1. sæti á lista Great Place to Work yfir frábæra vinnustaði á Íslandi og er viðurkenningin skýr staðfesting á þeirri sterku vinnustaðamenningu sem byggð hefur verið upp innan fyrirtækisins. Þar eru samheldni, teymisvinna, gagnkvæmur stuðningur og virðing í forgrunni. Árangurinn er ekki aðeins mikil viðurkenning fyrir AÞ Þrif, heldur einnig mikilvægt tækifæri til að varpa jákvæðu ljósi á ræstingarstarfið og það faglega starf sem fer fram víðs vegar um landið. Í viðtalinu ræðir Dagbjört Una Helgadóttir , sviðsstjóri mannauðs hjá AÞ Þrif , um menninguna, mikilvægi GPTW-vottunarinnar og hvernig fyrirtækið notar niðurstöður kannana til að styrkja starfsumhverfið enn frekar.
13. apríl 2025
AÞ-Þrif skipar nú efsta sætið á nýjum lista Great Place To Work á Íslandi yfir Frábæra vinnustaði fyrir konur 2025 í flokki stærri fyrirtækja og er þetta annað árið í röð sem fyrirtækið hlýtur þessa vottun. AÞ-Þrif er þjónustufyrirtæki sem sér um allar almennar hreingerningar hjá fyrirtækjum og stofnunum af öllum stærðum og gerðum; allt frá skólum upp í gagnaver. Fyrirtækið er á meðal þeirra stærstu hér á landi í þessari atvinnugrein og hjá því starfa nú um 250 manns, þar af eru hátt í 70% konur og 90% starfsfólks er af erlendum uppruna og kemur frá yfir 30 þjóðlöndum.
6. mars 2025
Great Place to Work hefur birt nýjan lista yfir Frábæra vinnustaði fyrir konur™ á Íslandi. Listinn inniheldur fyrirtæki sem vilja tryggja eðlilegt jafnvægi milli kvenna og karla á öllum sviðum; ryðja úr vegi hindrunum fyrir þróun kvenna í starfi og skapa vinnuumhverfi þar sem allt starfsfólk, óháð kyni, getur blómstrað.
Show More